Myndin hér til hliðar er tekin í gær og eins og sést er ég kasólétt. Við fórum í langan göngutúr í Grasagarðinum. Löbbuðum upp að Áskirkju sem er fyrir ofan Laugardalinn og eru þó nokkuð margar tröppur á leiðinni þangað upp en að gagna upp stiga er eitt af mörgum húsráðum sem reynd hafa verið til að koma ferlinu af stað.
Það er greinilega voða kósí þar inni þar sem barnið virðist ekki hafa mikin áhuga á því að koma út. Í dag er vika síðan áætlaður komutími var en ég er nú vön að gera allt á síðustu stundu.